Magni er búinn að tryggja sér bakvörðinn efnilega Helga Snæ Agnarsson á lánssamningi út tímabilið.
Helgi Snær er fæddur 1999 og kemur að láni frá Fjölni. Hann var lánaður til Vængja Júpíters í þriðju deildinni og skoraði tvö mörk í þrettán leikjum áður en Fjölnir kallaði hann til baka.
Helgi spilaði fimm leiki fyrir Fjölni í Inkasso-deildinni og mun nú öðlast frekari reynslu hjá Magna, sem rétt bjargaði sér frá falli í fyrra - annað árið í röð.
Magni heimsækir Fylki í Lengjubikarnum á sunnudaginn. Grenvíkingar töpuðu 5-0 gegn Víkingi R. í fyrstu umferð.
Athugasemdir