Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 21. febrúar 2021 15:23
Aksentije Milisic
Grealish frá í mánuð vegna meiðsla
Mynd: Getty Images
Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa, verður frá í um mánuð en þetta staðfesti félagið rétt í þessu.

Leikurinn gegn Leicester í dag er fyrsti deildarleikurinn sem Grealish missir af í fimmtán mánuði. Hann er meiddur og fæti og því eru þetta mjög slæmar fréttir fyrir Villa.

„Hann hefur átt í vandræðum í vikunni, í lok vikunnar ákváðum við að nota hann ekki. Ég hef ekki hugmynd um hvað hann verður lengi frá," sagði Dean Smith fyrir leikinn gegn Leicester í dag.

Grealish mun að öllum líkindum missa af fjórum deildarleikjum í mars mánuði og þá á enska landsliðið einnig leiki á þessum tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner