Fotbolti.net
21.02.22 - 19:25
Ívan Guðjón Baldursson

Everton lánar Gbamin til CSKA út tímabilið (Staðfest)

Everton lánar Gbamin til CSKA út tímabilið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hörður Björgvin Magnússon er kominn með nýjan liðsfélaga í CSKA Moskvu, miðjumanninn Jean-Philippe Gbamin.

Gbamin er 26 ára gamall og kemur á lánssamningi frá Everton sem gildir út tímabilið. Það fylgir ekki kaupákvæði með samningnum samkvæmt Fabrizio Romano.

Gbamin er landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar en fór ekki með þeim í Afríkukeppnina. Hann hefur aðeins spilað sex úrvalsdeildarleiki á þremur árum hjá Everton en þar áður var hann byrjunarliðsmaður hjá Mainz í Þýskalandi og Lens í Frakklandi.

Gbamin hefur verið á sölulista en ekki nógu gott tilboð borist. Hann á tvö ár eftir af samningi sínum við Everton.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.