Fotbolti.net
21.02.22 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson

Jón Arnar og Kári Péturs í KFG (Staðfest) - Fimm skipti

Kári Pétursson skoraði fimm mörk í tólf deildarleikjum með KFG í fyrra.

Kári Pétursson skoraði fimm mörk í tólf deildarleikjum með KFG í fyrra.

Canon

Mynd: Stjarnan

KFG var að styrkja leikmannahópinn sinn með fimm leikmönnum sem eru komnir með leikheimild.
Þar á meðal eru Jón Arnar Barðdal sem kemur frá HK og Kári Pétursson frá Stjörnunni.

Jón Arnar lék 20 leiki með HK í Pepsi Max-deildinni í fyrra og lék Kári sex leiki fyrir Stjörnuna áður en hann var lánaður til KFG þar sem hann reyndist lykilmaður. Þeir eru fæddir 1995 og 1996.

Þeir eru fæddir 1995 og 1996 en þrír aðrir leikmenn gengu í raðir KFG og er Snorri Páll Blöndal sá elsti, fæddur 1994, og lék síðast fyrir Álftanes.

Pétur Máni Þorkelsson og Jakob Emil Pálmason, fæddir um aldamótin, ganga til liðs við KFG frá KH og Víði. Pétur Máni lék fjóra leiki fyrir KFG í fyrra.

KFG endaði í þriðja sæti 3. deildar í fyrra og rétt missti af sæti í 2. deild á markatölu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.