Fotbolti.net
21.03.14 - 08:00
Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið Fylkis fær framherja frá Torres (Staðfest)

Fylkir vann 1. deild kvenna í fyrra.

Fylkir vann 1. deild kvenna í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Veronica Maglia er gengin til liðs við Fylki frá Torres á Ítalíu.
Hún er framherji, fædd 1989 og hefur spilað mest í Sviss en var nú síðast á samning hjá Torres á Ítalíu.

Veronica á að baki landsleiki með yngri landsliðum Sviss og var tvisvar markahæsti leikmaður Svissnesku efstu deildar árin 2009 og 2011.

Hún er annar erlendi leikmaðurinn sem Fylkir fær til liðs við sig á stuttum tíma því hin welska Carys Hawkins kom til félagsins á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.