Fotbolti.net
21.03.22 - 18:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Beta þakkar Dóru Maríu fyrir: Alltaf búið yfir einstökum hæfileikum

Beta og Dóra María.

Beta og Dóra María.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Dóra María Lárusdóttir hefur lagt skóna á hilluna eftir glæsilegan feril. Frá því var greint á föstudag hér á Fótbolti.net og í gær var birt viðtal við Dóru Maríu þar sem stiklað var á stóru á hennar ferli.

Sjá einnig:
Kveður Val með ró í hjarta - „Þetta var ógeðslega gaman
Dóra María leggur skóna á hilluna (Staðfest)
Elísabet Gunnarsdóttir var þjálfari Vals tímabilin 2004-2008 áður en hún tók við hjá Kristianstad þar sem hún er þjálfari í dag. Elísabet birti færslu á Instagram í gær þar sem hún skrifaði um Dóru Maríu.

„Fyrir mér er þetta ekki eins og hvaða frétt sem er. Fyrir mér markar þetta ákveðin tímamót þar sem Dóra er sú síðasta úr mínu fyrsta fótboltaliði sem endar sinn feril," skrifar Beta.

„Liðið og manneskjurnar sem hafa haft ómæld áhrif á mitt líf. Að mæta að Hlíðarenda á hverjum degi og þjálfa ykkur var það besta sem ég vissi af því að þið voruð svo metnaðarfullar, ótrúlega skemmtilegir einstaklingar og við sköpuðum einstakan Valsanda sem ég veit að lifir enn í dag."

„Það er svo týpískt Dóra María að reyna ad hætta í laumi án þess ad neinn tæki eftir því. En sem betur fer eigum við fótbolti.net sem eltir fréttir sem skipta máli."

„Að hafa tekið þátt i að móta þig sem leikmann og manneskju í yfir 10 ár er ég stolt og þakklát fyrir. Þú hefur alltaf búið yfir einstökum hæfileikum og þú hefur verid frábær fyrirmynd fyrir yngri leikmenn allan þinn feril. Að vinna 8 Íslandsmeistaratitla med uppeldisfélagi sínu + fjölda annarra verðlauna med yngri flokkum og sem einstaklingur segir allt sem segja þarf 🌟"

„Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og takk fyrir allt sem þú hefur gefið félaginu okkar Val og takk fyrir allt sem þú hefur gefið íslenskri knattspyrnu. Ómetanlegt og verður seint toppað ❤️."


Dóra María svaraði færslu Elísabetar: „Váá falleg kveðja. Kusk í augun og stingur í hjartað. Ég hefði ekki getað verið heppnari með þjálfara mín fyrstu skref á ferlinum og mikið er ég þakklát að þú nenntir að fylgja okkur inn í fullorðinsárin. Takk fyrir mig ❤️"

Beta þakkar Dóru Maríu fyrir: Alltaf búið yfir einstökum hæfileikum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ragnheiður Ágústa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.