Barcelona hefur lengi verið orðað við Florian Wirtz leikmann Leverkusen.
Þessi 19 ára gamli Þjóðverji er á sínu fjórða tímabili með Leverkusen en hann segist ekki vera hugsa um áhuga Barcelona.
„Ég hef ekki rætt við föður minn um þetta, hvað varðar Barcelona þá varð ég svolítið ringlaður á þessum orðrómi. Ég las þetta bara, ég vil einbeita mér af Leverkusen og ná árangri. Ég er ekki að horfa í framtíðina," sagði Wirtz en faðir hans er einnig umboðsmaðurinn hans.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann leikið 91 leik fyrir Leverkusen og skorað 21 mark. Hann á einnig fjóra A landsleiki að baki með Þýskalandi. Hann spilar sem framliggjandi miðjumaður.
Athugasemdir