Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 21. mars 2023 21:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ramsdale: Pabbi hótar að senda Arteta skilaboð
Öruggur á boltanum
Öruggur á boltanum
Mynd: EPA

Faðir Aaron Ramsdale, markmanns Arsenal er ekki sáttur með leikstíl liðsins. Hann vill ekki sjá son sinn fá boltann í fætur og senda stuttar sendingar.


Það má gera ráð fyrir því að þetta fari fyrir hjartað á gamla en Ramsdale sagði fyndna sögu um faðir sinn í viðtali hjá ESPN.

„Hann hatar þetta ennþá, gersamlega hatar þetta. Hann hótar að senda Arteta skilaboð. Eina vandamálið er ef ég fer of langt með þetta og segi „jæja þá, gerðu það, þú munt ekki gera það." Hann myndi þá gera það, hann er með númerið hans. Ég þarf að vanda mig," sagði Ramsdale léttur.

Arsenal hefur komið gríðarlega á óvart á tímabilinu og er á toppnum í deildinni. Ramsdale hefur haldið 12 sinnum hreinu í 28 leikjum.


Athugasemdir
banner
banner