21.04.21 - 22:12
Brynjar Ingi Erluson
Hvíta-Rússland: Willum með annan fótinn í úrslit - Skoraði og lagði upp

Willum Þór skoraði og lagði upp í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Willum Þór skoraði og lagði upp í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsmaðurinn Willum Þór Willumsson fór mikinn í 4-1 sigri BATE Borisov á Torpedo Zhodino í undanúrslitum bikarsins í Hvíta-Rússlandi.
Willum er lykilmaður í liði BATE en hann kom liðinu yfir á 2. mínútu leiksins.
Hann lagði þá einnig upp fjórða markið í sigrinum en liðið er nú með annan fótinn í úrslitum bikarsins.
Liðin eigast aftur við 5. maí en sigurvegarinn mætir Isloch eða Shakhtyor Soligorsk.
BATE hefur fjórum sinnum unnið bikarinn en liðið er ríkjandi bikarmeistari eftir að hafa unnið Dinamo Brest á síðasta tímabili í úrslitum.