Fotbolti.net
21.04.22 - 17:30
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool fær ungan leikmann frá Celtic (Staðfest)

Ben Doak er búinn að skrifa undir hjá Liverpool

Ben Doak er búinn að skrifa undir hjá Liverpool

Canon

Mynd: Instagram

Skoski táningurinn Ben Doak er búinn að gera langtímasamning við enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool en hann kemur frá Celtic. Þetta staðfesti hann á samfélagsmiðlum í dag.
Doak, sem er 16 ára gamall, er uppalinn hjá Celtic og hefur þegar spilað tvo leiki fyrir aðallið félagsins.

Hann kom inná sem varamaður gegn bæði Dundee United og Rangers á þessari leiktíð, en hann leikur hægra megin á vellinum, bæði á vængnum og í bakverði.

Liverpool greiðir Celtic 600 þúsund pund fyrir Doak sem mun spila með unglinga- og varaliðinu.

Doak birti myndi af sér við undirskrift á samningnum í dag og staðfesti þar með samkomulagið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.