21.04.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Milos Djordjevic í Ægi (Staðfest)

Mynd: Knattspyrnudeild Ægis

Mynd: Knattspyrnudeild Ægis
Ægir heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í 2. deildinni. Í gær tilkynnti félagið um komu Milos Djordjevic en hann kemur til félagsins frá serbneska liðinu Borac Sakule.
Djordjevic er 28 ára gamall sóknarsinnaður leikmaður sem er uppalinn hjá serbneska stórliðinu Partizan.
Hann á að baki 150 leiki í tveimur efstu deildunum í bæði Bosníu og Serbíu og ljóst að Ægismenn eru að fá mann með mikla reynslu fyrir átökin í sumar.
Ægir mætir KFS í Mjólkurbikarnum á Domusnovavellinum í kvöld og er Milos kominn með leikheimild fyrir þann leik.