21.04.22 - 10:25
Elvar Geir Magnússon
Ten Hag nýr stjóri Man Utd (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester United hefur ráðið Erik ten Hag sem nýjan stjóra félagsins. Hollendingurinn tekur við eftir yfirstandandi tímabil. Hann hefur gert þriggja ára samning með möguleika á eins árs framlengingu.
Manchester United hefur staðfest þetta.
Manchester United hefur staðfest þetta.
Ten Hag, sem er 52 ára, tekur við af Ralf Rangnick sem mun fara í ráðgjafahlutverk á Old Trafford.
Ten Hag verður fimmti fastráðni stjóri United síðan Sir Alex Ferguson lét af störfum 2013.
„Síðustu fjögur ár hjá Ajax hefur Erik sannað sig sem einn mest spennandi þjálfari Evrópufótboltans, spilað skemmtilegan sóknarfótbolta og lagt áherslu á unga leikmenn," segir John Murtough, yfirmaður fótboltamála hjá Manchester United.
„Í samræðum okkar við Erik vorum við mjög hrifnir af sýn hans og langtímaáætlun til að koma Manchester United á það stig sem við viljum vera. Hann sýndi drifkraft og vilja til að afreka það. Við óskum Erik alls hins besta í að einbeita sér á að klára tímabilið hjá Ajax og erum spenntir fyrir því að fá hann til Manchester United í sumar."
Það verður svo sannarlega verk að vinna fyrir Erik ten Hag á Old Trafford en Manchester United er í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og miklar líkur á að liðið verði ekki í Meistaradeildinni á næsta tímabili.
Sjá einnig:
Hvað fær Man Utd með því að ráða Ten Hag?

🇳🇱👔
— Manchester United (@ManUtd) April 21, 2022
The new First-Team Manager of Manchester United: Erik ten Hag.#MUFC || #WelcomeErik