Þróttur Vogum fær Michael Kedman og landsliðsmann Níkaragva (Staðfest)


Mynd: Þróttur V.


Mynd: Þróttur V.

Þróttur Vogum hefur fengið liðsstyrk fyrir keppni í sumar en leikmaður að nafni Pablo Gallego er genginn í raðir liðsins.
Um er að ræða 28 ára gamlan sóknarmann sem mun hjálpa Þrótturum að etja kappi í næst efstu deild í sumar.
Gallego kemur til Þróttara frá Pierikos FC í Grikklandi og er hann þá landsliðsmaður Níkaragva.
Gallego hefur verið á mála hjá Real Zaragoza á Spáni og hefur spilað bæði í Slóvakíu sem og í heimalandinu.
Annar leikmaður samdi þá við félagið en það er vinstri bakvörðurinn Michael Kedman sem kemur frá Englandi.
Kedman var í unglingaliðum bæði Chelsea og West Ham en hann þekkir aðeins til Íslands eftir að hafa leikið með Fylki 2020.
Síðast spilaði Kedman með Dartford í ensku utandeildinni en hann gerir samning við Þrótt út tímabilið.
