Brighton 3 - 0 Chelsea
1-0 Ferdi Kadioglu ('3 )
2-0 Jack Hinshelwood ('56 )
3-0 Danny Welbeck ('90 )
1-0 Ferdi Kadioglu ('3 )
2-0 Jack Hinshelwood ('56 )
3-0 Danny Welbeck ('90 )
Ekki er útlit fyrir að Chelsea muni spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð eftir að liðið tapaði fyrir Brighton, 3-0, í 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á AMEX-leikvanginum í kvöld.
Chelsea hafði tapað fjórum leikjum í röð fram að þessum leik og átti aldrei möguleika í kvöld.
Tyrkinn Ferdi Kadioglu skoraði með skoti úr teignum eftir að hornspyrna fór í gegnum alla vörnina og á Kadioglu sem skaut í varnarmann og inn.
Annað markið gerði Jack Hinshelwood á 56. mínútu. Brighton-menn hreinsuðu boltann langt fram og hafði Georginio Rutter betur í baráttunni við Moises Caicedo, hljóp síðan fram völlinn áður en hann lagði boltann til hliðar á Hinshelwood sem setti boltann í vinstra hornið.
Varamaðurinn Danny Welbeck varð síðan markahæsti Englendingurinn í deildinni á þessu tímabili með marki úr miðjum teignum eftir fyrirgjöf frá Maxim De Cuyper. Þetta var þrettánda deildarmark hans og er hann farinn að gera sterkt tilkall til að vera í enska landsliðshópnum sem fer á HM í sumar.
Sannfærandi hjá Brighton sem fer upp fyrir Chelsea í 6. sætið með 50 stig, tveimur meira en Chelsea sem er í 7. sæti með 48 stig.
Vonir Chelsea um að komast í Meistaradeildina eru nánast engar, en besti möguleiki liðsins núna er að vona að Aston Villa verði Evrópudeildarmeistari og hafni í 5. sæti, þá mun sjötta sætið gefa þátttökurétt í Meistaradeildina.




