Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 15:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Þorvaldur Smári Jónsson (HK)
Lengjudeildin
Mynd: HK
Erfiður viðureignar.
Erfiður viðureignar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Segið fólkinu af hverju þið eruð bestir í heimi.
Segið fólkinu af hverju þið eruð bestir í heimi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Léttur með brainrot djókana.
Léttur með brainrot djókana.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Velkominn heim í Kórinn.
Velkominn heim í Kórinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Þór Gunnarsson gekk í raðir HK síðasta vor.
Atli Þór Gunnarsson gekk í raðir HK síðasta vor.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Með alvöru pípur.
Með alvöru pípur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorvaldur Smári er efnilegur miðjumaður sem fór í vetur á reynslu til enska úrvaldeildarfélagsins Sunderland. Valur hefur mikinn áhuga á því að fá hann í sínar raðir.

Hann lék sína fyrstu unglingalandsleiki í síðasta mánuði með U19 og á síðasta tímabili kom hann við sögu í ellefu leikjum í Lengjudeildinni. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Þorvaldur Smári Jónsson

Gælunafn: Tolli

Aldur: 17

Hjúskaparstaða: Lausu

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það var á móti Stjörnunni í æfingaleik 2024, kom inná, skoraði og lagði upp

Uppáhalds drykkur: Nocco ramonade

Uppáhalds matsölustaður: Grazie Trattoria og Pure deli

Uppáhalds tölvuleikur: Fortnite er lowkey back

Áttu hlutabréf eða rafmynt: er mjög þungur á solana

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Prison break s1 er peak

Uppáhalds tónlistarmaður: Balti Gull, plata á leiðinni í sumar veit ég

Uppáhalds hlaðvarp: Doc

Uppáhalds samfélagsmiðill: Tik Tok

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: playfootballgames eða fotbolti.net

Fyndnasti Íslendingurinn: Hjörvar Hafliða

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: pabbi: Hr eftir eina

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Keflavík

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Francisco Fernandes á móti Portúgal, unreal baller

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Gunnar Heiðar, Hemmi, Ómar - get ekki valið á milli

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Gabríel Snær í Blikum hefur oft verið pirrandi út af hversu erfitt er að ná boltanum af honum

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: alltaf Messi

Sætasti sigurinn: fyrri leikurinn á móti Þrótti í umspilinu var insane

Mestu vonbrigðin: tapið á móti Kef í fyrra var súrt

Uppáhalds lið í enska: því miður er það Tottenham

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: yrði ekki leiðinlegt að fá Eið Gauta aftur í Kórinn

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: verð að gefa Bjarka Erni Brynjarssyni þetta, alvöru talent

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Tumi Þorvars er alveg mogger

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: margar fallegar

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Leo

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: hætta VAR

Uppáhalds staður á Íslandi: Kórinn, álftaneslaug fær shout líka

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: ónefndur liðsfélagi minn tók boltann upp með höndum inn á eiginn teig á móti Stjörnunni í semis á Helsinki cup í 4. flokki, sem varð til þess Tómas Óli skoraði last minute pen á móti okkur

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta:
biðja fyrir æfingar og leiki

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: pílan og íslenska karfan í playoffs

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: vanalega Tiempo en er að testa Copa núna

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Íslenskan hefur alltaf verið bras

Vandræðalegasta augnablik: ætli það hafi ekki verið á stuðningsmannakvöldi í fyrra þegar Hemmi lét okkur koma upp og segja afhverju við værum bestir í heimi, það var vont

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: fæ Messi, Neymar og Suarez og við rifjum upp góðu tímana hjá Barca

Bestur/best í klefanum og af hverju: Karl Ágúst fer á kostum á hverjum degi með brainrot djókum sínum

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: væri skemmtilegt að sjá Hauk Leif taka þátt í Idolinu með þessa fallegu söngrödd sem hann hefur

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: ekkert eitthvað sturlað, en ég á 5 bræður

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Atli Þór Gunnars, helt hann myndi aldrei segja orð eftir fyrstu vikunnar þegar hann kom. En hann er ekkert eðlilega fun gæi eftir að hann kom úr skelinni

Hverju laugstu síðast: bara basic að ég hefði farið út með hundinn

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: hlaup og upphitun

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: myndi spyrja stjórn Tottenham hverjum datt í hug að signa Igor Tudor

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Mætið endilega og styðjið okkur í þessari vegferð í sumar!
Slapp
banner
banner