Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 16:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Úlfa Dís Kreye (Stjarnan)
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Líka efnilegur dansari.
Líka efnilegur dansari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mikil stemningskona.
Mikil stemningskona.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þakkar traustið.
Þakkar traustið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sammy Smith er mjög öflug.
Sammy Smith er mjög öflug.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bombshell.
Bombshell.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alltaf með góðar sögur.
Alltaf með góðar sögur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grilluð týpa.
Grilluð týpa.
Mynd: Oregon State Athletics
Úlfa Dís er uppalin hjá FH en hefur verið hjá Stjörnunni frá árinu 2021. Á síðasta tímabili skoraði hún tólf mörk í 22 leikjum í Bestu deildinni og skoruðu einungis tvær fleiri mörk í deildinni.

Kantmaðurinn hefur leikið í bandaríska háskólaboltanum og lék á sínum tíma fjóra leiki fyrir yngri landsliðin. Í dag sýnir hún á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir

Gælunafn: Aldrei verið með neitt gælunafn en pabbi kallaði mig oft Dísin þegar ég var lítil

Aldur: 24 ára

Hjúskaparstaða: Í sambandi

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Fyrsti leikurinn minn í meistaraflokki var æfingaleikur með FH. Þetta var sumarið 2016 á sama degi og karlalandslið Íslands kom heim frá EM í Frakklandi þegar allir tóku á móti þeim á Arnarhóli, svo ég missti af því

Uppáhalds drykkur: Iced Brown Sugar Oatmilk Shaken Espresso á Starbucks í Bandaríkjunum. Fékk mér þetta nánast á hverjum degi í 4 ár

Uppáhalds matsölustaður: Sushi Social

Uppáhalds tölvuleikur: Spila ekki tölvuleiki

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Game of Thrones eru mjög góðir, annars hef ég líka horft á nokkrar seríur af Love Island

Uppáhalds tónlistarmaður: Elska alla íslenska tónlist en Spotify segir að ég hlusti mest á Justin Bieber, Herra Hnetusmjör og Króla

Uppáhalds hlaðvarp: Orkugreining

Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fotbolti.net

Fyndnasti Íslendingurinn: Auddi og Steindi

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Ulfa, timinn thinn er kl 08:00 thann 13.04

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Aldrei segja aldrei…

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Samantha Smith í fyrra var mjög góð

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Verð að fá að nefna tvo. Lærði mjög mikið þegar Troy Fabiano var þjálfarinn minn úti í Bandaríkjunum og verð líka alltaf þakklát fyrir traustið sem Kristján Guðmunds gaf mér

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Finnst engin óþolandi

Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Bræður mínir

Sætasti sigurinn: Finnst allir sigrar jafn sætir

Mestu vonbrigðin: Þegar ég var nýbyrjuð í fótbolta þá var ég ekki skráð í eitthvað Nora kerfi og mátti þá ekki taka þátt í Símamótinu það ár sem var mjög mikill skellur

Uppáhalds lið í enska: Hef aldrei fylgst með enska boltanum en segi alltaf bara Manchester United

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ég myndi vilja fá Þóru Rún úr Fram í mitt lið, mikil stemningskona

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Fanney Lísa er mjög efnileg. Ekki bara í fótbolta samt, hún kemur stundum með rosaleg dansspor í klefanum

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi:

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Litla frænka mín, Sigrún Ísfold

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Ronaldo

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Að það megi spila með skartgripi

Uppáhalds staður á Íslandi: Landmannalaugar

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Síðasta sumar þegar við kepptum á móti FHL á heimavelli þá gleymdist búningataskan þeirra og við lánuðum þeim gamla varabúninginn okkar. Þær voru mjög góðar í þessum leik, það hlýtur að hafa gefið þeim auka kraft að spila í Stjörnutreyjunni.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Ekki mikið, bara úrslitakeppninni í körfu og landsliðinu í handbolta

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Mercurial

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Var mjög lengi að ná enskunni

Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég skoraði rosalegt mark í mikilvægum leik í Bandaríkjunum… en það var sjálfsmark

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Myndi bjóða Snædísi Maríu því hún er alltaf með góðar sögur, Gyðu svo að ekkert fari úr böndunum og svo Huldu því hún myndi passa að maturinn væri eldaður rétt. Ég get þá hallað mér aftur og hlegið

Bestur/best í klefanum og af hverju: Bridgette Skiba því hún er alltaf í stuði og er mjög grilluð

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ég myndi vilja horfa á Jönu Sól koma inn sem bombshell í Love Island

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég á 7 systkini

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Ég bjóst ekki við því að Margrét Lea væri svona fyndin, það er ómögulegt að hlæja ekki þegar hún djókar

Hverju laugstu síðast: Ég lýg yfirleitt ekki, en það myndi örugglega vera bara í einhverju lygaspili

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Margt skemmtilegra en upphitun

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja:

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Hlakka til að sjá ykkur á vellinum!
Slapp
banner
banner
banner