Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   þri 21. apríl 2026 12:40
Kári Snorrason
Rodri ekki með gegn Burnley
Mynd: EPA
Manchester City mætir Burnley í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld. Liðið vann 2-1 sigur á Arsenal um helgina og með sigri gegn Burnley getur City tillt sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar.

Pep Guardiola ræddi um leikinn á blaðamannafundi fyrr í dag.

„Við ræddum strax eftir leikinn gegn Arsenal og lögðum áherslu á að missa ekki einbeitingu. Arsenal er á toppnum eins og staðan er núna og væri meistari ef tímabilið kláraðist í dag.

Þetta var krefjandi leikur, bæði andlega og líkamlega. Á sama tíma eigum við sex leiki eftir. Við vitum nákvæmlega hvað er í húfi, hvort sem við náum úrslitum eða ekki.“

Rodri ekki með
Pep staðfesti að Rodri verði ekki klár gegn Burnley en hann fór meiddur af velli gegn Arsenal: „Ég held að hann verði ekki tilbúinn fyrir morgundaginn. Við metum svo stöðuna fyrir undanúrslitaleikinn í FA bikarnum gegn Southampton,“ sagði Guardiola.

Hann sagði jafnframt að Rúben Dias væri enn ekki orðinn leikfær en hann hefur verið frá undanfarinn mánuð.

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner