Chelsea heimsækir Brighton í fyrsta leik 34. umferðar úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Chelsea hefur verið í vandræðum að undanförnu en liðið hefur tapað fjórum deildarleikjum í röð og er sjö stigum á eftir Liverpool í baráttunni um Meistaradeildarsæti.
Chelsea hefur verið í vandræðum að undanförnu en liðið hefur tapað fjórum deildarleikjum í röð og er sjö stigum á eftir Liverpool í baráttunni um Meistaradeildarsæti.
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, spilaði á sínum tíma um 450 leiki á England en hann lauk ferlinum hjá Brighton árið 2018.
„Ég átti sérstakan tíma þar, það var og er enn fullt af mjög góðu fólki þar. Uppgangur félagsins kemur mér ekki á óvart," sagði Rosenior en hann spilaði tvö tímabil með liðinu í Championship deildinni og kom við sögu í þremur leikjum í úrvalsdeildinni tímabilið 2017/18.
„Fabian Hurzeler hefur gert frábæra hluti. Þeir eru með leikmenn sem skilja kerfið til lengri tíma og það verður erfitt að spila á móti þeim."



