Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Segja Samúel Kára á leið í Val
Samúel Kári er á leið í Val
Samúel Kári er á leið í Val
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Samúel Kári Friðjónsson er á leið í Val frá Stjörnunni en Dr. Football greinir frá þessu á X.

Samúel Kári sneri aftur heim á síðasta ári eftir þrettán ár í atvinnumennsku.

Hann spilaði 25 leiki með Stjörnunni í Bestu deildinni á síðustu leiktíð og komið við sögu í báðum leikjum liðsins á þessu tímabili. Samúel byrjaði gegn KA í fyrstu umferðinni, en kom inn af bekknum í 3-2 sigrinum á FH í síðustu umferð.

Dr. Football fullyrðir að Samúel sé nú á förum frá Stjörnunni og að ganga í raðir Vals.

Valsmenn hafa verið í leit að styrkingu og farið fremur þunnskipaðir inn í mótið.

„Já já eins og við höfum nú sagt í allan vetur og það hefur lítið heppnast í þessu þannig séð. Við erum alltaf með augun opin og það sjá það allir að þetta er frekar þunnt hjá okkur,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, á dögunum er hann var spurður út í mögulega styrkingu fyrir lok gluggans.


Slapp
banner
banner
banner