Mexíkóska fótboltasambandið hefur staðfest að Rafa Marquez taki við karlalandsliðinu af Javi Aguirre eftir heimsmeistaramótið í sumar.
Marquez, sem lék lengi vel með Barcelona á Spáni, hefur verið aðstoðarmaður Aguirre frá 2024.
Hann hefur ekki mikla reynslu úr þjálfun. Hann þjálfaði unglingalið Barcelona frá 2022 til 2024, en hefur verið að að læra handtökin undir Aguirre.
Duilio Davino, yfirmaður íþróttamála hjá mexíkóska fótboltasambandinu, hefur nú staðfest að Marquez verði næsti landsliðsþjálfari Mexíkó.
Aguirre mun stýra liðinu á HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada í sumar og síðan muni Marquez taka við.
Mexíkó er í riðli með Tékklandi, Suður-Kóreu og Suður-Afríku í riðli á HM en leikir liðsins eru spilaðir frá 11. til 25. júní og fara allir leikir liðsins fram í heimalandinu.



