„Tímabilið leggst mjög vel í okkur HK-inga. Við erum búnir að æfa vel og getum ekki beðið eftir því að byrja mótið," segir Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, við Fótbolta.net um komandi keppnistímabil.
HK er spáð fimmta sæti deildarinnar. „Spáin kemur svo sem ekkert á óvart. Það er náttúrulega komið inn nýtt þjálfarateymi með nýjar áherslur og það tekur stundum tíma að fullmótast inn í leikmannahópinn."
HK er spáð fimmta sæti deildarinnar. „Spáin kemur svo sem ekkert á óvart. Það er náttúrulega komið inn nýtt þjálfarateymi með nýjar áherslur og það tekur stundum tíma að fullmótast inn í leikmannahópinn."
Það er ástæðan fyrir því að ég tók við liðinu
Gunnar Heiðar tók við HK í vetur eftir að hafa gert mjög flotta hluti með Njarðvík.
„Klúbburinn, stuðningsmenn og leikmenn hafa tekið frábærlega á móti mér og teyminu mínu. Ég finn fyrir miklu hungri í klúbbnum að koma HK aftur á þann stað sem það á að vera. Það er ástæðan fyrir því að ég tók við liðinu síðastliðið haust. Við erum með sömu markmið," segir Gunnar Heiðar.
„Þetta verkefni er allt öðruvísi verkefni heldur en ég var með í Njarðvík. HK er klúbbur sem hefur spilað nokkrum sinnum í efstu deildinni á Íslandi á síðustu 5-6 árum á meðan Njarðvík hefur aldrei spilað í efstu deild á Íslandi. Það munaði mjög litlu í fyrra að draumurinn hefði ræst en því miður datt það ekki með okkur í fyrra. Ég átti frábæran tíma í Njarðvík og við bættum öll félagsmet í fyrra. Ég er virkilega stoltur af því!"
Erum orðnir mjög spenntir
Eyjamaðurinn segir að það hafi gengið vel hjá HK-ingum í vetur og er hann sáttur við stöðuna sem er á hópnum.
„Það hefur gengið vel í vetur. Við erum búnir að spila fullt af leikjum og margir ungir HK-ingar fengið að spreyta sig með okkur. Við erum orðnir mjög spenntir að byrja mótið."
„Við missum náttúrulega markahæsta leikmann síðasta sumars frá okkur en við náðum í Dominik Radic í staðinn frá Njarðvík sem ég þekki mjög vel. Það hafa verið nokkur meiðsli í vetur í hópnum okkar en ég er mjög ánægður með leikmannahópinn fyrir mótið," segir Gunnar Heiðar.
Alltaf 23 gráður og logn
Það verður mjög svo spennandi að sjá hvernig deildin mun spilast í sumar.
„Ég held að Lengjudeildin hafi aldrei verið eins sterk og í ár. Mörg lið búin að styrkja sig vel og vilja taka skrefið upp í Bestu deildina. Mér sýnist 8-9 lið ætla að berjast um þessi fimm efstu sæti sem gefa þér möguleikan á að fara upp í Bestu deildina. Þannig baráttan verður mikil í sumar," segir þjálfari HK-inga en markmiðin eru einföld.
„Markmiðið okkar er að gera betur heldur en í fyrra!"
HK var aðeins einum sigri frá því að fara upp í fyrra. „Ég hlakka til að sjá fólkið í hverfinu koma á leiki okkar í sumar. Við ætlum að spila aðlaðandi sóknarbolta og í Kórnum erum við með einstaka aðstöðu til að mynda stemmingu á leikjum okkar. Alltaf 23 gráður og logn. Það er ekki hægt að biðja um það betra á öllu Íslandi. Sjáumst hress á vellinum í sumar," sagði Gunnar Heiðar að lokum.


