Fotbolti.net
21.05.19 - 13:11
Arnar Daði Arnarsson

Fá lið fengið eins jákvætt umtal þrátt fyrir að vinna ekki leik

Úr leik hjá Víkingum.

Úr leik hjá Víkingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

<i>„Nú þarf maður að passa lýsingarorðin svo menn fari ekki að gráta,"</i> sagði Tómas Þór Þórðarson á léttum nótum í <a href="https://fotbolti.net/news/20-05-2019/b-innkastid-b-sogulinum-fjolgar-og-enginn-kann-ad-stodva-skagalestina" target="_blank">nýjasta Innkastinu</a> hér á Fótbolta.net.

Þar var hann að ræða um vonbrigði Víkinga að hafa ekki náð að vinna ÍBV í Eyjum í 5. umferð Pepsi Max-deildarinnar.

<b><a href="https://fotbolti.net/news/20-05-2019/b-innkastid-b-sogulinum-fjolgar-og-enginn-kann-ad-stodva-skagalestina" target="_blank">Smelltu hér til að hlusta á þáttinn</a></b>
„Þetta var algjör hörmung nánast frá upphafi til enda. Víkingsliðið var meira með boltann en maður sá í byrjun að þetta yrði ströggl. Þungur og blautur grasvöllur en þetta lið er að einhverju leyti sett upp til að spila gervigrasbolta."

„Þegar tiki-taka sendingarnar eru ekki að ganga þá ertu kominn í íslenskan vorbolta og þarft að vera með hörku og kraft. Víkingar voru gjörsamlega undir í allri baráttu framan af. Eyjamenn náðu þannig að stimpla sig inn í leikinn."

„Þetta var algjört högg. Fá lið hafa fengið eins jákvætt umtal, meðal annars frá mér, þrátt fyrir að hafa ekki unnið leik í fyrstu fjóru umferðunum. Svo kemur þessi leikur í Eyjum. Þeir voru marki yfir og manni fleiri þegar 20 mínútur voru eftir. Það verður ekki mikið verra," sagði Tómas Þór.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.