Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 21. maí 2019 12:00
Elvar Geir Magnússon
Flestir mæta að horfa á Breiðablik og Fylki
Stemning í stúkunni hjá Fylki.
Stemning í stúkunni hjá Fylki.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fyrstu fimm umferðirnar í Pepsi Max-deild karla hafa verið viðburðaríkar. Óvænt úrslit hafa litið dagsins ljós, mörg mörk hafa verið skoruð og leikirnir spennandi.

Alls hafa 31.256 áhorfendur sótt leikina 30, eða 1.042 að meðaltali.

Best sótta umferðin hingað til er 2. umferð, en í öllum umferðunum hefur heildarfjöldi áhorfenda verið yfir 5 þúsund.

Níu af félögunum 12 í deildinni hafa meðalaðsóknina eitt þúsund eða meira á sína heimaleiki eftir þessar 5 umferðir.

Flestir áhorfendur hafa mætt á leikið Breiðabliks en Fylkir og FH koma þar á eftir.

Aðsókn eftir umferðum
Umferð Aðsókn Meðaltal
1 | 6.780 | 1.130
2 | 7.474 | 1.246
3 | 5.045 | 841
4 | 5.263 | 877
5 | 6.694 | 1.116
Alls | 31.256 | 1.042

Aðsókn eftir liðum
Lið Meðaltal
Breiðablik 1.605
Fylkir 1.480
FH 1.450
Valur 1.277
ÍA 1.218
KR 1.086
HK 1.006
Stjarnan 1.000
KA 1.000
Víkingur 977
Grindavík 680
ÍBV 269
Meðaltal 1.042


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner