Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 21. maí 2019 10:15
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Létt yfir Liverpool mönnum á Marbella
Roberto Firmino í góðu skapi.
Roberto Firmino í góðu skapi.
Mynd: Getty Images
Liverpool mætti í gær til Marbella á Spáni þar sem liðið mun æfa næstu sex daga. Liðið er að búa sig undir úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Tottenham sem fram fer 1. júní.

Naby Keita er óvænt meðal leikmanna í æfingahópnum en hann er meiddur á nára.

Hann mun halda endurhæfingu sinni áfram á Spáni en vangaveltur eru uppi um hvort hann gæti mögulega spilað í úrslitaleiknum í Madríd.

Ungstirnin Rhian Brewster og Ben Woodburn eru einnig í hópnum ásamt Alex Oxlade-Chamberlain sem nýlega kom aftur úr meiðslum.

Hér má sjá myndir af því þegar Jurgen Klopp og leikmenn Liverpool mættu til æfinga í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner