Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 21. maí 2020 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gamla markið: Messi rölti í gegnum vörn Real Madrid
Mynd: Getty Images
Það er ekki mikið um fótbolta þessa stundina og í fótboltalausa tímabilinu er um að gera að rifja upp gamalt og gott mark.

Í dag förum við aftur til ársins 2011 þegar erkifjendurnir Barcelona og Real Madrid mættust í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Barcelona gerði sér lítið fyrir með því að vinna 2-0 á Santiago Bernabeu þar sem Argentínumaðurinn Lionel Messi skoraði bæði mörkin. Síðara markið var algjörlega frábært þegar Messi rölti í gegnum vörn Real Madrid.

Markið má sjá neðst í fréttinni.

Ef þú átt hugmynd að góðu marki til að rifja upp sendu þá tölvupóst á [email protected]

Eldra efni í „gamla markið"


Athugasemdir
banner
banner
banner