30.09.26 - 08:20
Elvar Geir Magnússon
Vináttulandsleikir: Yngsti markaskorari Bandaríkjanna frá upphafi

Mathis Albert, til hægri, í leik með Borussia Dortmund.

Mynd: EPA

Bandaríkin halda áfram að fara á kostum í þessum glugga en þjálfarinn Mauricio Pochettino gefur mörgum ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri til að láta ljós sitt skína, og leikmennirnir hafa gripið gæsina.
Eftir 4-1 sigur gegn Perú um síðustu helgi lék liðið annan vináttulandsleik, nú gegn Síle, og vann 4-2.
Mathis Albert, leikmaður Borussia Dortmund, skoraði síðasta mark leiksins í uppbótartíma og varð þar með yngsti markaskorari bandaríska karlalandsliðsins frá upphafi. 17 ára og 131 dags gamall.
Fyrr í leiknum hafði Julian Halls, 18 ára sóknarmaður New York Red Bulls, náð að skora og varð yngsti leikmaðurinn til að skora í fyrstu tveimur landsleikjum sínum fyrir Bandaríkin.
Sebastian Berhalter og Chris Richards skoruðu einnig fyrir bandaríska liðið en leikurinn fór fram í St Louis. Hinn bandarísk-íslenski Cole Campbell, leikmaður Elversberg í Þýskalandi, er í 28 manna hóp Bandaríkjanna en hefur ekki verið í leikdagshópnum í þessum tveimur leikjum sem eru búnir.
Bandaríska liðið fer nú til Phoenix í Arizona og mætir Mexíkó 3. október en Mexíkó gerði 1-1 jafntefli gegn Perú í nótt.

TENGT EFNI
Vináttulandsleikir: Bandarískir táningar skinu skært - Mora braut blað fyrir Mexíkó
Vináttulandsleikir
Bandaríkin 4-2 Síle
Mexíkó 1-1 Perú
Bandaríkin 4-2 Síle
Mexíkó 1-1 Perú
BAR DOWN AND IN FOR MATHIS ALBERT! ????#USMNT x @VW pic.twitter.com/gF5OvCaiqh
— U.S. Soccer Men's National Team (@USMNT) September 30, 2026

Mynd: EPA