Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 21. maí 2022 10:00
Victor Pálsson
Isco yfirgefur Real Madrid (Staðfest)
Mynd: Getty Images

Spánverjinn Isco mun ekki leika með liði Real Madrid á næstu leiktíð en þetta hefur Carlo Ancelotti, stjóri liðsins, staðfest.


„Ferill Isco hjá Real Madrid endar í dag og þessi ferill hefur verið frábær," sagði Ancelotti í gærkvöldi.

„Hann hefði klárlega getað gert meira en hann hefur verið mikilvægur. Ég óska honum alls hins besta."

Isco er þrítugur að aldri en hann samdi við Real fyrir níu árum síðan og lék tæplega 250 deildarleiki.

Isco yfirgefur Real á frjálsri sölu en hvert hann fer næst er óvíst.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner