Fotbolti.net
21.05.26 - 00:26
Ívan Guðjón Baldursson

Áfrýjun Southampton bar ekki árangur

Áfrýjun Southampton bar ekki árangur
Canon

Mynd: Southampton FC/X

Southampton var á dögunum dæmt úr leik í umspili Championship deildarinnar og fær félagið fjögur mínusstig fyrir upphaf næstu leiktíðar vegna ólöglegra njósna.
Southampton dæmt úr leik í umspilinu og fær refsistig
TENGT EFNI

Southampton dæmt úr leik í umspilinu og fær refsistig



Njósnari frá Southampton var gómaður á æfingasvæði Middlesbrough fyrir undanúrslitaleik liðanna í umspilinu og hafði Southampton svo betur eftir framlengingu. Leikmenn liðsins héldu að þeir væru á leið í úrslitaleikinn á Wembley en Middlesbrough kærði atvikið og vann málið.

Southampton áfrýjaði en fótboltayfirvöld voru fljót að bregðast við og höfnuðu röksemdafærslu stjórnenda félagsins. Röksemdafærslan snýst um fordæmi frá 2019 þegar Leeds var sektað um 200 þúsund pund fyrir að njósna um Derby County. Eftir þetta atvik var ný reglugerð kynnt í ensku neðrideildunum til að sporna við njósnum og því ekki hægt að nota atvikið frá 2019 sem fordæmi.

Stjórnendur, leikmenn og stuðningsmenn Southampton eru ósáttir með niðurstöðuna en þurfa að sætta sig við hana.

Fagnar því að heiðarleiki leiksins sé verndaður - Southampton hefur áfrýjað
TENGT EFNI

Fagnar því að heiðarleiki leiksins sé verndaður - Southampton hefur áfrýjað



Middlesbrough spilar úrslitaleik Championship deildarinnar við Hull á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.