Fotbolti.net
21.06.13 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Royston Drenthe til Reading (Staðfest)

Royston Drenthe til Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur gert tveggja ára samning við hollenska kantmanninn Royston Drenthe.

Drenthe var á síðasta tímabili hjá Alania Vladikavkaz í Rússlandi en hann kemur frítt til Reading.
Drenthe þekkir til á Englandi því hann var í láni hjá Everton frá Real Madrid á þarsíðasta tímabili.

Þessi 26 ára gamli Hollendingur var á sínum yngri árum talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu en hann hefur hins vegar aldrei náð þeim hæðum sem vonast var eftir.

Menn eru með pennann á lofti í Reading í dag því varnarmaðurinn Alex Pearce hefur einnig skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.

Heimild: Heimasíða Reading

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.