Cagliari hefur gengið frá kaupunum á varnarmanninum Fabrizio Cacciatore frá Chievo Verona.
Bæði lið hafa gefið út yfirlýsingu að leikmaðurinn verði um kyrrt hjá Cagliari.
Hinn 32 ára gamli skrifaði undir samning hjá Cagliari til 2020 eftir að hafa verið á láni hjá félaginu.
Á meðan á láninu stóð kom Fabrizio 14 sinnum við sögu í ítölsku úrvalsdeildinni.
Fabrizio er reynslumikill leikmaður sem styrkir vörnina hjá Cagliari sem fengu á sig 54 mörk í 38 leikjum í deildinni.
Athugasemdir