Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 21. júní 2019 11:00
Elvar Geir Magnússon
Inter kaupir Politano (Staðfest)
Matteo Politano.
Matteo Politano.
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Inter tilkynnti á heimasíðu sinni að félagið hefði nýtt sér klásúlu um kaup í samningi tveggja leikmanna sem voru á láni hjá félaginu.

Matteo Politano og Eddie Salcedo eru alfarið orðnir leikmenn Inter.


Matteo Politano er 25 ára vængmaður sem kemur frá Sassuolo. Hann lék 36 leiki á síðasta tímabili fyrir Inter og skoraði fimm mörk. Ánægja var með frammistöðu hans.

Eddie Salcedo kom á láni frá Genoa en hann er aðeins 17 ára gamall. Hann á enn eftir að leika fyrir aðallið Inter en þessum unga sóknarmanni er spáð bjartri framtíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner