Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. júní 2019 18:00
Elvar Geir Magnússon
Orsolini keyptur til Bologna (Staðfest)
Riccardo Orsolini.
Riccardo Orsolini.
Mynd: Getty Images
Bologna hefur keypt ítalska vængmanninn Riccardo Orsolini frá Juventus. Þessi U21-landsliðsmaður var á láni hjá Bologna á liðinni leiktíð.

Orsolini er staddur með U21-landsliði Ítalíu á lokamóti Evrópukeppninnar.

Orsolini kemur úr akademíu Ascoli en Juventus fékk hann til sín 2017. Hann náði ekki að leika aðalliðsleik fyrir Juventus en var lánaður til Atalanta áður en hann fór til Bologna.

Hann vann gullskóinn á HM U20-landsliða 2017 með því að skora fimm mörk.
Athugasemdir
banner
banner