Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. júní 2021 14:39
Elvar Geir Magnússon
Ákall frá stjórn KSÍ vegna ógnandi framkomu í garð dómara
Dómarar ganga af velli.
Dómarar ganga af velli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjórn KSÍ hefur sett inn yfirlýsingu á heimasíðu sína þar sem segir að of margar fréttir og frásagnir hafi borist af áreiti og ógnandi tilburðum í garð dómara í leikjum og eftir leiki.

Þar er meðal annars talað um að gæslumenn séu að misnota aðstöðu sína og nálægð við dómara.

Ákall hefur verið sent til aðildarfélaga og má sjá það hér að neðan.

Ákall frá stjórn KSÍ vegna framkomu í garð dómara

Kæru fulltrúar aðildarfélaga KSÍ.

Undanfarnar vikur hafa borist of margar fréttir og frásagnir af miður fallegri framkomu í garð knattspyrnudómara. Áreiti og ógnandi tilburðir hafa sést í leikjum og eftir leiki. Dómurum hefur verið hótað vegna ákvarðana þeirra, og það hefur jafnvel gerst að hótanir berist fjölskyldu dómara eftir leik! Nú er mál að linni. Þetta verðum við að stöðva og við þurfum að gera það í sameiningu.

Víða er það þannig að starfsaðstaða dómara, búningsklefar og önnur aðstaða, er ekki boðleg . Því miður gerist það að gæslumenn, sem eiga að gæta öryggis dómara í leikjum, misnoti aðstöðu sína og nálægð við dómarana og hreyti ónotum í þá, vegna ákvörðunar í leiknum sem viðkomandi mislíkaði. Það sama á við um marga aðra starfsmenn félaga og leikja. Þetta er ekki í lagi hjá okkur.

Við erum öll að reyna að byggja upp knattspyrnuna í landinu. Stöðug neikvæðni og niðurrif í garð dómara, svo ekki sé minnst á ógnandi hegðun, hjálpar okkur ekki á þeirri vegferð. Dómarar eru ómissandi hluti af leiknum og við einfaldlega verðum að fara að sýna þeirra störfum meiri virðingu, tillitssemi og ekki síst þakklæti. Dómurum verða á mistök eins og leikmönnum en þeir hafa ástríðu fyrir fótboltanum eins og við öll og eiga betra skilið.

Dómararnir koma úr félögunum alveg eins og leikmennirnir. Það geta engin aðildarfélög látið eins og dómgæsla komi þeim ekki við, eins og það sé bara mál KSÍ að búa til og skaffa dómara á leiki. Hér verða félögin mörg hver að gera mun betur, koma upp hópi dómara, búa þeim umgjörð sem sómi er að og gera það eftirsóknarvert að koma og starfa við dómgæslu fyrir félögin, sem sum hver standa sig virkilega vel í þessu, en þau eru of fá. Hér verða forráðamenn margra félaga að gera betur og byggja dómgæsluna okkar upp.

Orð og gjörðir leikmanna, þjálfara og annarra fulltrúa félaganna hafa áhrif á aðra. Þetta einfaldlega verður að breytast og við í sameiningu verðum að skapa jákvæðara umhverfi fyrir dómgæslu og fótboltann í landinu.

Stjórn KSÍ

Athugasemdir
banner
banner
banner