Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 21. júní 2021 19:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Sýndu einhvern besta leik sem ég hef séð íslenskt lið spila"
Úr leik Breiðablik og FH í gær.
Úr leik Breiðablik og FH í gær.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, hrósaði Breiðablik mikið í viðtali við Stöð 2 Sport fyrir leik gegn KR í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

Breiðablik vann 4-0 sigur á FH í gær og Arnar var gríðarlega hrifinn af því sem hann sá frá Blikum í gærkvöld.

„Þetta er búið að vera frábært mót hingað til. KA hefur komið á óvart. Blikarnir í gær - í fyrri hálfleik sérstaklega - sýndu einhvern besta leik sem ég hef séð íslenskt lið spila, bara nokkurn tímann," sagði Arnar.

Blikarnir hafa verið að spila vel, kannski án þess að ná í mjög góð úrslit. Þeir spiluðu frábærlega í gær og náðu í stórkostleg úrslit í leiðinni.

Víkingar hafa komið á óvart hingað til og eru eina taplausa lið deildarinnar. Þeir taka á móti KR í kvöld.

Hægt er að fara í beina textalýsingu frá Víkingsvelli með því að hérna.
Athugasemdir
banner