Southampton er búið að festa kaup á Armel Bella-Kotchap, tvítugum miðverði sem hefur verið hjá Bochum síðustu fimm ár.
Southampton borgar um 10 milljónir punda fyrir Bella-Kotchap sem er fæddur í Frakklandi en spilar fyrir sterkt U21 landslið Þýskalands.
Bella-Kotchap skrifar undir fjögurra ára samning en hann lék 74 leiki á tíma sínum hjá Bochum, þar af 22 í efstu deild.
Hann er þriðji leikmaðurinn til að ganga í raðir Southampton í sumar eftir að félagið krækti í tvo markverði fyrr í júní.
Defender Armel Bella-Kotchap has joined #SaintsFC on a four-year deal from @VfLBochum1848eV ✍️
— Southampton FC (@SouthamptonFC) June 21, 2022
Athugasemdir