Fotbolti.net
21.06.25 - 00:51
Stefán Marteinn Ólafsson

Gústi Gylfa: Þetta var bara nokkuð vel spilaður fótboltaleikur

Auglýsing
Ágúst Gylfason þjálfari Leiknis

Ágúst Gylfason þjálfari Leiknis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin

Leiknir tók á móti Njarðvík á Domusnovavellinum í kvöld þegar níunda umferð Lengjudeildarinnar hélt áfram göngu sinni.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 1 - 1 Njarðvík

„Þetta var hörku leikur og kaflaskiptur leikur fannst mér" sagði Ágúst Gylfason þjálfari Leiknis eftir leik. 

„Við erum ekki búnir að byrja síðustu þrjá leiki svona aðmennilega. Við byrjuðum klárlega í dag alveg á fullu gasi og ég er virkilega ánægður með liðið varnarlega og við sóttum vel á þá" 

„Við fengum kjörin tækifæri til þess að komast yfir. Fyrstu þrjátíu mínúturnar var þetta nokkurnveginn eign okkar að mínu mati" 

„Njarðvíkingar komu svo inn í leikinn síðasta korterið í fyrri hálfleik og manni stóð ekki alveg á sama því þeir voru að yfirspila okkur í þetta korter. Þetta var mjög kaflaskiptur tími og fyrri hálfleikur sérstaklega"

„Seinni hálfleikur var meira jafnvægi fannst mér og við náum að setja mark á þá úr föstu leikatriði og þetta var 50/50. Við fengum 2-3 nokkuð góð færi hérna í lokin sem maður hefði vljað sjá inni en þetta er hörku lið þetta Njarðvíkurlið og vel spilandi. Þetta var bara nokkuð vel spilaður fótboltaleikur" 

Nánar er rætt við Ágúst Gylfason í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.