Fotbolti.net
21.07.13 - 12:00
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Raul Albiol til Napoli (Staðfest)

Raul Albiol.

Raul Albiol.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænski varnarmaðurinn Raul Albiol hefur yfirgefið Real Madrid eftir fjögurra ára dvöl og er genginn í raðir Napoli.
Albiol skrifaði undir fjögurra ára samning. Hann kemur til með að fylla í það skarð sem Hugo Campagnaro skildi eftir sig þegar hann fór til Inter í sumar.

Sem fyrr segir lék Albiol í fjögur ár með Madrídingum, en þar áður var hann til mála hjá Valencia. Þá á hann að baki 40 leiki fyrir með spænska landsliðinu.

Albiol er fimmtu kaup Rafael Benitez, stjóra Napoli, frá því hann tók við liðinu fyrr í sumar, en hann hefur þó enn nóg á milli handana eftir að hafa selt Edinson Cavani til PSG fyrir skömmu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.