Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 21. júlí 2019 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ekki draumabyrjun fyrir Joao Felix
Mynd: Getty Images
Joao Felix lék sinn fyrsta leik fyrir Atletico Madrid þegar liðið mætti Numancia í æfingaleik í gær.

Þessi 19 ára gamli Portúgali fékk ekki draumabyrjun með Atletico því hann þurfti að fara meiddur af velli eftir hálftíma. Það er vonandi að meiðslin séu ekki alvarleg.

Felix sýndi flotta takta á fyrstu 30 mínútunum og kom meðal annars Diego Costa í gott færi, sem hann náði ekki að nýta.

Joao Felix var keyptur til Atletico Madrid frá Benfica fyrir 113 milljónir punda. Hann er dýrasti leikmaður í sögu Atletico og því augljsólega miklar vonir bundnar við hann.

Sjá einnig:
Rosalegar breytingar á leikmannahópi Atletico
Athugasemdir
banner
banner