Fotbolti.net
21.07.19 - 20:30
Arnar Helgi Magnússon

Gummi Magg ekki á förum frá ÍBV

Gummi Magg ekki á förum frá ÍBV
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Magnússon var ekki í leikmannahópi ÍBV þegar liðið tapaði fyrir Fylki í Pepsi Max-deildinni í dag, 3-0.

Sá orðrómur hafði verið á kreiki að Guðmundur myndi yfirgefa ÍBV nú í sumarglugganum. Andri Ólafsson, aðstoðarþjálfari liðsins, staðfesti eftir leikinn í dag að hann væri ekki á förum.
„Nei hann er ekki að fara. Hann er tognaður í náranum og þurfti að hætta á æfingu í gær. Hann verður með á móti Grindavík í næsta leik," sagði Andri.

Guðmundur er búinn að leika tólf leiki fyrir ÍBV í sumar, bæði í deild og í bikar og hefur hann skorað í þeim þrjú mörk.

Hér að neðan má sjá viðtalið við Andra eftir leikinn í dag.

Andri: Náum ekki í fleiri stig ef leikmenn leggja sig ekki fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.