Malmö mætti Sirius á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Arnór Ingvi Traustason lék ekki með vegna meiðsla.
Arnór varð fyrir hrottalegri tæklingu í leik gegn Djurgärden um síðustu helgi. Óttast var að Arnór Ingvi hefði fótbrotnað í kjölfarið en sem betur fer slapp hann óbrotinn.
Arnór varð fyrir hrottalegri tæklingu í leik gegn Djurgärden um síðustu helgi. Óttast var að Arnór Ingvi hefði fótbrotnað í kjölfarið en sem betur fer slapp hann óbrotinn.
Leikurinn í dag endaði með 1-1 jafntefli. Sirius komst yfir áður en Anders Christiansen jafnaði fyrir Malmö, sem er á toppi deildarinnar með 36 stig.
Markið var einstaklega glæsilegt. Hann skoraði með svokölluðu sporðdrekasparki.
Sjón er sögu ríkari. Markið má sjá hér að neðan.
Athugasemdir