21.07.26 - 06:30
Fótbolti.net
Lið og leikmaður 14. umferðar - Stýrði umferðinni

Birkir Eyþórsson er leikmaður umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjartur Bjarmi Barkarson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mattías Kjeld.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Birkir Eyþórsson er leikmaður umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding heldur áfram á sigurbraut í Lengjudeildinni en Fylkir fylgir fast á eftir og er aðeins einu stigi frá Mosfellingum. Fylkir vann 4-1 sigur á Njarðvík í 14. umferð og á leikmann umferðarinnar.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Birkir Eyþórsson - Fylkir
Skoraði tvö mörk og stýrði umferðinni á miðjunni. Var grimmur í öllum einvígum og hljóp úr sér lungun. Í uppstillingu úrvalsliðsins setjum við Birki í vörnina.
Guðmundur Tyrfingsson skoraði einnig tvö mörk í leiknum og er í liði umferðarinnar og þá er Heimir Guðjónsson þjálfari umferðarinnar.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Birkir Eyþórsson - Fylkir
Skoraði tvö mörk og stýrði umferðinni á miðjunni. Var grimmur í öllum einvígum og hljóp úr sér lungun. Í uppstillingu úrvalsliðsins setjum við Birki í vörnina.
Guðmundur Tyrfingsson skoraði einnig tvö mörk í leiknum og er í liði umferðarinnar og þá er Heimir Guðjónsson þjálfari umferðarinnar.

Joacim Holtan skoraði tvennu í sigri Aftureldingar á Leikni 3-2. Þá átti Bjartur Bjarmi Barkarson enn og aftur frábæran leik á miðsvæðinu.
HK er í þriðja sæti en liðið rúllaði yfir Vestra 6-2. Dominik Radic skoraði tvö mörk og er orðinn markahæstur í deildinni. Tumi Þorvarsson skoraði og lagði upp í leiknum.
Hlynur Þórhallsson er fulltrúi Þróttar eftir 1-0 sigur á Völsungi.
Grótta rúllaði yfir Ægi 6-1 og á tvo unga leikmenn í úrvalsliðinu. Mattías Kjeld heldur áfram að spila frábærlega og skoraði tvívegis. Björgvin Brimi Andrésson skoraði eitt mark.
Grindavík og ÍR gerðu markalaust jafntefli og hvort lið á einn fulltrúa í liði umferðarinnar. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson og Damir Muminovic eru í úrvalsliðinu.
Fyrri úrvalslið:
13. umferð - Óðinn Bjarkason - Afturelding
12. umferð - Andri Freyr Jónasson - Grótta
11. umferð - Birkir Már Sævarsson - Afturelding
10. umferð - Edson - Vestri
9. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR

Bjartur Bjarmi Barkarson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mattías Kjeld.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 16 | +22 | 34 |
| 2 | Þróttur R. | 17 | +20 | 34 |
| 3 | Fylkir | 17 | +9 | 33 |
| 4 | Njarðvík | 17 | +5 | 29 |
| 5 | HK | 17 | +8 | 28 |
| 6 | Grótta | 16 | +4 | 26 |
| 7 | Leiknir R. | 17 | -2 | 22 |
| 8 | Vestri | 17 | -10 | 21 |
| 9 | ÍR | 17 | -8 | 19 |
| 10 | Grindavík | 17 | -7 | 17 |
| 11 | Völsungur | 17 | -16 | 14 |
| 12 | Ægir | 17 | -25 | 8 |
