Fotbolti.net
21.08.13 - 16:37
Elvar Geir Magnússon

Elmander orðinn leikmaður Norwich (Staðfest)

Johan Elmander er mættur í Norwich.

Johan Elmander er mættur í Norwich.

Canon

Mynd: Getty Images

Sænski sóknarmaðurinn Johan Elmander er kominn til enska úrvalsdeildarfélagsins Norwich á láni frá Galatasaray í eitt tímabil.

Elmander er 32 ára en í sumar hefur Chris Hughton einnig fengið til liðsins þá Ricky van Wolfswinkel og Gary Hooper.
„Ég er afskaplega ánægður með að samkomulag sé í höfn og hlakka mikið til tímabilsins framundan,\" segir Elmander sem skoraði 18 mörk í 92 úrvalsdeildarleikjum fyrir Bolton en hann spilaði með Bolton 2008-2011.

„Það er frábært að fá svona mikinn reynslubolta sem er sænskur landsliðsmaður. Ég býð hann velkominn,\" segir Hughton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.