Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   fös 21. ágúst 2020 15:13
Elvar Geir Magnússon
Bjarni Páll í HK (Staðfest)
Bjarni Páll Linnet Runólfsson.
Bjarni Páll Linnet Runólfsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Páll Linnet Runólfsson hefur yfirgefið Víking Reykjavík og gengið í raðir HK.

Þessi baráttuglaði miðjumaður hefur komið við sögu í tveimur leikjum með Víkingum í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Í fyrra var hann lánaður til Þróttar og lék þar níu leiki í B-deildinni.

Bjarni er 23 ára og verður kominn með leikheimild fyrir morgundaginn en þá mun HK heimsækja FH.

HK-ingar eru í níunda sæti Pepsi Max-deildarinnar en hér að neðan má sjá hvaða leikir eru framundan.

föstudagur 21. ágúst
19:15 Fylkir-Stjarnan (Würth völlurinn)
19:15 Grótta-Breiðablik (Vivaldivöllurinn)

laugardagur 22. ágúst
14:00 FH-HK (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍA (Greifavöllurinn)

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner