Fotbolti.net
21.08.20 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Henrik Larsson nýr aðstoðarþjálfari Barcelona (Staðfest)

Henrik Larsson nýr aðstoðarþjálfari Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Henrik Larsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Barcelona en hann hefur gert tveggja ára samning við félagið.

Hann verður aðstoðarmaður Ronald Koeman sem var ráðinn þjálfari Barcelona í vikunni eftir að Quique Setien var rekinn.
Larsson spilaði með Barcelona í tvö tímabil á sínum tíma en Koeman er einnig fyrrum leikmaður félagsins.

Koeman og Larsson spiluðu einnig saman hjá Feyenoord frá 1995 til 1997.

Alfred Schreuder, fyrrum þjálfari Twente og Hoffenheim, er einnig kominn í þjálfaraliðið hjá Barcelona.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.