Sindri hefur fengið Kanadíska/Írska varnarmanninn Conor O'Callaghan til liðs við sig fyrir átökin í 3.deildinni.
Conor, sem fæddur er 1995 kemur úr háskólaboltanum í Kanada en hann hefur einnig leikið með Aurora FC sem spilar í Kanadísku 1.deildinni.
Hann er kominn međ leikheimild og getur því leikið sinn fyrsta leik þegar Álftanes kemur í heimsókn á Höfn í Hornafirði á morgun.
Sindri er í 4. sæti í 3.deildinni í augnablikinu. fjórum stigum frá 2. sætinu.
Athugasemdir



