Fotbolti.net
Spáin fyrir enska - 3. sæti

20.08.26

Spáin fyrir enska - 3. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Enska úrvalsdeildin hefst á morgun og núna er komið að því að opinbera hvaða lið endaði í þriðja sæti í spá Fótbolta.net fyrir komandi keppnistímabil. Liverpool endaði rétt fyrir ofan Manchester United í þessari spá.
Liverpool er á leið inn í áhugavert tímabil. Tveggja ára stjóratíð Arne Slot lauk eftir lélegt tímabil þar sem Liverpool tapaði 19 leikjum í öllum keppnum og nú hefur Andoni Iraola verið falið það verkefni að koma aftur á fót þann sóknarsinnaða fótbolta sem stuðningsmenn félagsins þrá.

Iraola sýndi einmitt þessa eiginleika hjá Bournemouth. Lið hans spilaði ákafan og framsækinn fótbolta, með háa varnarlínu og mikla pressu. Það hljómar kunnuglega fyrir stuðningsmenn Liverpool enda stóð Jurgen Klopp fyrir slíkum fótbolta á meðan hann var stjóri liðsins.

Stuðningsmennirnir vonast eftir nýrri útgáfu af Klopp-fótbolta eftir að hafa orðið sífellt pirraðri á hægum uppbyggingarleik og passífum fótbolta undir Slot. Fyrstu skilaboð Iraola eftir að hann tók við voru einnig til þess fallin að kveikja aftur vonina. Hann vill ekki aðeins stjórna Liverpool, heldur verða hluti af félaginu og vinna sér inn réttinn til að tilheyra því.

Verkefnið verður þó langt frá því að vera einfalt. Mohamed Salah, Andy Robertson og Ibrahima Konaté eru allir farnir og það skilur eftir sig stór skörð, ekki aðeins innan vallar heldur einnig í klefanum. Iraola hefur enn ekki unnið stóran titil sem stjóri og reynsla hans af Evrópukeppnum er lítil. Það verður því áhugavert að sjá hvernig hann tekst á við pressuna sem fylgir því að stjórna Liverpool, en ef honum tekst að ná aftur tengingunni milli liðsins og stuðningsmannanna gæti nýr og spennandi kafli hafist á Anfield.
Spáin fyrir enska - 3. sæti

Mynd: EPA

Stjórinn: Andoni Iraola verður aðeins 22. stjórinn í 134 ára sögu Liverpool og það segir sitt um hversu stór ákvörðun það var að slíta samstarfinu við Arne Slot eftir aðeins tvö ár. Félagið telur sig hins vegar hafa fundið rétta manninn. Iraola á að koma með þann kraftmikla og sókndjarfa fótbolta sem stuðningsmenn Liverpool söknuðu á síðasta tímabili. Leikstíll hans byggir á mikilli ákefð, hápressu og beinskeyttum sóknarleik og því má búast við allt öðru yfirbragði á liðinu. Einhverjir hafa þó sett spurningamerki við það hvort Iraola hafi þá áru sem til þarf til að stjórna Liverpool.

Enski boltinn - Það á að vera gaman að horfa á Liverpool
TENGT EFNI

Enski boltinn - Það á að vera gaman að horfa á Liverpool



Leikmannaglugginn: Liverpool hefur misst stóra pósta frá félaginu sem spiluðu lykilhlutverk í stórkostlegum árangri síðustu ára. Liverpool hefur fengið nokkra menn inn, en félagið á klárlega eftir að versla meira. Til dæmis er mikið talað um Bradley Barcola, kantmann Paris Saint-Germain þessa dagana.

Komnir:
Jérémy Jacquet frá Rennes - 55 milljónir punda
Víctor Munoz frá Osasuna - 34,5 milljónir punda
Ronald Araújo frá Barcelona - Á láni
Spáin fyrir enska - 3. sæti

Mynd: Liverpool

Farnir:
Mohamed Salah til Trabzonspor - Á frjálsri sölu
Ibrahima Konaté til Real Madrid - Á frjálsri sölu
Andy Robertson til Tottenham - Á frjálsri sölu

Líklegt byrjunarlið
Mynd: FotMob


Lykilmaður: Virgil van Dijk
Verður áfram lykilmaður Liverpool á nýju tímabili. Þrátt fyrir að vera orðinn 35 ára lék hann hverja einustu mínútu í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og fór svo með Hollandi á HM. Hann er enn í heimsklassa og reynsla hans verður gríðarlega mikilvæg eftir að Ibrahima Konaté yfirgaf félagið. Van Dijk þarf að leiða unga kollega sína áfram þar sem Giovanni Leoni, aðeins 19 ára, og nýi miðvörðurinn Jeremy Jacquet, 21 árs, gætu fengið stór hlutverk. Það verður því mikið álag á Hollendingnum, bæði innan vallar og utan.

Gaman að fylgjast með: Jeremy Jacquet
Þessi 21 árs gamli Frakki kemur inn með takmarkaða reynslu á hæsta stigi en hefur verið talinn einn af efnilegustu miðvörðum Evrópu. Með Van Dijk sér við hlið fær hann kjörið tækifæri til að læra af einum af þeim allra bestu og gæti reynst afar spennandi viðbót við Liverpool-liðið. Hann hefur litið vel út á undirbúningstímabilinu og stuðningsmenn Liverpool eru mjög spenntir fyrir honum.
Spáin fyrir enska - 3. sæti

Mynd: Liverpool

Besta og versta mögulega niðurstaða: Ef allt gengur upp, þá getur Liverpool veitt Arsenal alvöru samkeppni um Englandsmeistaratitilinn en ef allt fer á versta veg þá rétt missir Liverpool af Meistaradeildarsæti.

Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni.
.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. Liverpool, 228 stig
4. Manchester United, 225 stig
5. Chelsea, 222 stig
6. Tottenham, 186 stig
7. Aston Villa, 178 stig
8. Brighton, 166 stig
9. Bournemouth, 135 stig
10. Newcastle, 128 stig
11. Everton, 123 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.