Fotbolti.net
21.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Vilja Tomori í stað Konsa

Vilja Tomori í stað Konsa
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa er byrjað að leita að varnarmanni í stað Ezri Konsa sem nálgast Englandsmeistara Arsenal.
Viðræður Arsenal og Aston Villa um Konsa eru komnar langt á veg. Honum er ætlað að fylla skarð William Saliba, sem verður frá keppni næstu mánuði.

Villa fær um 51 milljón punda fyrir Konsa og ætlar að nota hluta kaupverðsins til að styrkja vörnina.

Sky segir Fikayo Tomori hjá AC Milan vera einn þeirra sem koma til greina.

Tomori er 28 ára gamall og hefur leikið með Milan frá árinu 2021 en var áður á mála hjá Chelsea. Milan er talið vilja fá um 12-15 milljónir punda fyrir hann.

Hann á sex A-landsleiki fyrir England og lék síðast með landsliðinu gegn Úrúgvæ í vináttuleik í mars.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.