21.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
4. deild: Álftanes komið upp og Hamar einum sigri frá því sama

Álftanes er komið upp í 3. deild

Mynd: Aðsend

Hamar þarf einn sigur til að komast upp

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Álftanes er komið upp í 3. deild

Mynd: Aðsend
Álftanes tryggði sér sæti í 3. deild karla á næstu leiktíð með 7-1 stórsigri á Höfnum í 15. umferð 4. deildarinnar í gær. Allt stefnir í að Hamar fylgi Álftanesi upp um deild.
Álftanes hefur verið nánast óstöðvandi í sumar og vann sinn fjórtánda leik af fimmtán með stórsigri á Höfnum.
Arian Ari Morina og Stefán Smári Halldórsson skoruðu tvennu hvor, en Bessi Thor Jónsson, Patrik Thor Pétursson og Markús Pálmi Pálmason gerðu sitt markið hver.
Sigurinn kom Álftanesi í 42 stig og tryggði liðinu sæti í 3. deild á næsta tímabili.
Hamar vann á meðan 2-1 útisigur á Árborg og er komið með annan fótinn upp um deild. Liðið er í öðru sæti með 40 stig, átta stigum á undan næsta liði þegar þrjár umferðir eru eftir.
Guido Rancez og Brynjólfur Þór Eyþórsson skoruðu mörk Hamars sem sneri leiknum sér í vil. Þeir hafa raðað inn mörkum í sumar en Rancez er markahæstur í deildinni með 21 mark og Brynjólfur kemur næstur með sextán.
Vængir Júpíters unnu mikilvægan 3-0 sigur á Álafossi í fallbaráttunni. Vængirnir eru komnir upp í 7. sæti með þrettán stig en Álafoss er á botninum með átta.
KFR lagði Úlfana að velli, 2-0, og ÍH og Elliði gerðu 2-2 jafntefli.
Úrslit og markaskorarar:
ÍH 2 - 2 Elliði
0-1 Snorri Geir Ríkharðsson ('2 )
1-1 Birkir Jósefsson Linnet ('19 )
1-2 Natan Hjaltalín ('41 )
2-2 Birkir Jósefsson Linnet ('76 )
Úlfarnir 0 - 2 KFR
0-1 Þórður Kalman Friðriksson ('1 )
0-2 Bjarni Þorvaldsson ('28 )
Árborg 1 - 2 Hamar
1-0 Aron Freyr Margeirsson ('3 )
1-1 Guido Rancez ('7 )
1-2 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('41 )
Hafnir 1 - 7 Álftanes
0-1 Bessi Thor Jónsson ('14 )
0-2 Stefán Smári Halldórsson ('27 )
0-3 Arian Ari Morina ('45 )
0-4 Stefán Smári Halldórsson ('45 )
1-4 Kristófer Orri Magnússon ('51 )
1-5 Patrik Thor Pétursson ('61 )
1-6 Arian Ari Morina ('85 )
1-7 Markús Pálmi Pálmason ('86 )
Álafoss 0 - 3 Vængir Júpiters
0-1 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('19 )
0-2 Óskar Dagur Jónasson ('50 )
0-3 Matthías Elnar Óskarsson ('58 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Álftanes | 15 | +45 | 42 |
| 2 | Hamar | 15 | +46 | 40 |
| 3 | Árborg | 15 | +32 | 32 |
| 4 | Elliði | 15 | -3 | 21 |
| 5 | Úlfarnir | 15 | -6 | 16 |
| 6 | Vængir Júpiters | 15 | -11 | 16 |
| 7 | KFR | 15 | -15 | 15 |
| 8 | ÍH | 15 | -21 | 11 |
| 9 | Hafnir | 15 | -41 | 10 |
| 10 | Álafoss | 15 | -26 | 8 |