21.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Má fara frá Palace - „Besta lausnin fyrir hann og okkur“

Mynd: Crystal Palace

Mynd: Crystal Palace
Pierre Sage, stjóri Crystal Palace, gerir fastlega ráð fyrir því að enski vængmaðurinn Romain Esse yfirgefi félagið fyrir lok gluggans.
Esse er 21 árs gamall en hann gekk til liðs við Palace frá Millwall fyrir 12 milljónir punda í byrjun síðasta árs.
Hann náði ekki að festa sig í sessi hjá Palace á síðustu leiktíð og var lánaður til Coventry eftir áramót. Þar hjálpaði hann liðinu að vinna sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Esse hefur nú fengið þær upplýsingar að hann verði ekki í stóru hlutverki hjá Palace á komandi tímabili og Sage býst við að hann yfirgefi félagið.
„Ef ég á að vera hreinskilinn þá held ég að hann fari. Við getum ekki boðið honum nægan spilatíma og það er því best fyrir hann að finna aðra lausn.“
„Stundum verður maður einfaldlega að vera hreinskilinn. Hann þarf að spila til að verða sá leikmaður sem hann vill verða og því væri best fyrir alla aðila að hann færi annað.“
„Það er ástæðan fyrir því að hann æfir ekki með liðinu í augnablikinu,“ sagði Sage.
Club Brugge átti í viðræðum við Palace um Esse en þær sigldu í strand. Óvíst er hvort belgíska félagið muni reyna aftur áður en glugginn lokar.