Fotbolti.net
21.08.26 - 21:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lillý Rut: Veit ekki almennilega hvað gerðist

Auglýsing
Lillý Rut: Veit ekki almennilega hvað gerðist
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Mér fannst við undir í baráttunni og flestu í fyrri hálfleik. Við ræddum það mikið í hálfleik að við þyrftum að rífa okkur aðeins í gang og berjast meira saman sem lið og mér fannst við gera það í seinni," sagði Lillý Rut Hlynsdóttir sem skoraði sigurmark Vals gegn Þór/KA í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór/KA 0 - 1 Valur
Hún skoraði dramatískt mark á 90. mínútu.

„Ég veit ekki almennilega hvað gerðist. Kemur eitthvað skot og þær hreinsuðu, svo er ég ein fyrir aftan línuna hjá þeim og náði einhvern vegin að koma boltanum inn. Ég er glöð að geta hjálpað liðinu vinna leikinn," sagði Lillý.

Lillý ólst upp hjá Þór/KA en hún gekk til liðs við Val árið 2019.

„Mér líður alltaf rosalega vel að spila hér. Svo þegar leikurinn er flautaður á gleymir maður öllu í kring," sagði Lillý.

„Þetta var nauðsynlegur sigur fyrir okkur. Við þurfum á öllum stigunum að halda. Mjög sátt að við höfum tekið þennan leik. Vonandi náum við að halda áfram og mæta eins og við mættum í seinni hálfleikinn í næstu leiki. Þá eigum við að geta unnið hvað lið sem er, sérstaklega ef við höldum markinu hreinu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.